Innlent

Ólafi enn haldið sofandi

Ólafi Þórðarsyni tónlistarmanni er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er alvarlega slasaður eftir árás sem hann varð fyrir á heimili sínu á sunnudag. Sonur Ólafs hefur hann játað að hafa ráðist á föður sinn. Hann var handtekinn skömmu eftir árásina og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Ung kona var handtekin með syni Ólafs en henni sleppt skömmu síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×