Shahla Jahled hengd í nótt 1. desember 2010 09:11 Shahla Jahled. MYND/AFP
Írönsk kona var hengd í nótt í Teheran en hún var sökuð um að hafa myrt eiginkonu frægs fótboltamanns. Shahla Jahled hefur setið í fangelsi í níu ár fyrir morðið en mannréttindasamtök víða um heim höfðu barist fyrir málstað hennar. Samtök á borð við Amnesty International segja að Jahled hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð en hún játaði morðið í yfirheyrslum en dró síðan játninguna til baka ítrekað við réttarhöldin. Írönsk yfirvöld hafa verið sökuð um að hafa beitt pyntingum til þess að þvinga fram játningu hennar. Jahled bjó með fótboltamanninum Mohammad Khani þegar hún er sögð hafa myrt fyrstu eiginkonu hans. Þau Jahled og Mohammad höfðu gengið í svokallað tímabundið hjónaband sem heimilt er samkvæmt íslömskum lögum. Slíkir ráðahagir geta verið til nokkura klukkustunda eða ára. Þetta kom í veg fyrir að maðurinn yrði dæmdur fyrir hórdóm, sem ströng viðurlög eru við. Málið hefur vakið mikla athygli í Íran og fyrir utan landsteinanna og árið 2008 var dauðadómnum snúið við. Jahled var hinsvegar dregin fyrir rétt á ný í febrúar í fyrra og þá var dauðadómurinn staðfestur. Afp fréttastofan segir að aftakan í nótt sé sú 146 sem framkvæmd er í Íran á þessu ári.
Mest lesið Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Innlent Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Innlent Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Innlent Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Innlent Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Innlent Fleiri fréttir Tala látinna á Spáni hækkar Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Stórsigur beggja innan skekkjumarka Ný flaug flaug lengra en áður Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Sækja hraðar fram í Dónetsk Trump lék ruslakarl í Wisconsin Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Beðin um að tilkynna líkfundi Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Tala látinna á Spáni hækkar hratt Biden í bobba eftir ummæli um rusl Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar „Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Sporvagn af sporinu í Osló og inn í verslun Ákvörðun Ísrael að banna UNRWA vekur reiði og ótta Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Sjá meira