Innlent

Vefhetja ársins valin

Þetta er í annað sinn sem Netið Expo er haldið. Þessi mynd var tekin á fyrstu sýningunni
Þetta er í annað sinn sem Netið Expo er haldið. Þessi mynd var tekin á fyrstu sýningunni
Almenningur getur nú tilnefnt fólk og fyrirtæki til nýrra vefverðlauna sem afhent verða á sýningunni Netið Expo í Smáralind í mars.

Verðlaunaflokkar eru tíu og hægt er að senda inn ábendingar um tilnefningar til 12. janúar en þá mun dómnefnd sem skipuð er sérfræðingum tilnefna fimm í hverjum flokki.

Veitt verða verðlaun af ýmsu tagi, meðal annars fyrir besta viðmótið, besta smartsímavefinn, fyrir leik ársins, nýliða ársins auk þess sem sérstök heiðursverðlaun sem nefnd eru Hetja ársins, verða veitt þeim sem þykir hafa unnið þarft og gott starf á sviði vef- og netmála á Íslandi. Allar upplýsingar má fá á netidexpo.is

Sýningin Netið Expo er nú haldin í annað sinn. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði. Fjölmörg fyrirtæki munu kynna sína þjónustu, allt frá farsíma- og netlausnum, vefsíðum og hönnun til upplýsingaveita og viðskipta. Sýningin er haldin í samstarfi við Reykjavík International Marketing Conference & expo, RIMC. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru Borgun, Síminn og CCP.

Verðlaunaflokkarnir NEXPO verðlaunanna eru eftirfarandi:

Apps ársins

Frumleiki og notendaviðmót í öndvegi.

Herferð ársins

Auglýsingaherferð sem hefur nýtt kosti vefsins best, skilað góðum árangri og skarað framúr í hönnun.

Leikur ársins

Hugmynd, framkvæmd og viðmót sem þykir skara framúr.

Nýliði ársins

Nýtt netfyrirtæki sem hefur tekist að gera sig og/eða vörur sínar gildandi og mikils er vænst af.

Smartsímavefur ársins

Vefur sem býður upp á þægilegasta viðmótið fyrir farsíma.

Fyrirtækjavefur ársins - Starfsmenn (+50) Stórt fyrirtæki.

Vefur stórfyrirtækis sem hefur gott viðmót, flotta hönnun, skýran tilgang og spennandi nýjungar.

Fyrirtækjavefur ársins - Starfsmenn (-50) Lítið fyrirtæki.

Vefur minni fyrirtækis sem hefur gott viðmót, flotta hönnun, skýran tilgang og spennandi nýjungar.

Samskiptavefur ársins

Fyrirtæki sem þykir hafa staðið sig best í samskiptum og upplýsingagjöf til viðksiptavina í gegnum samskiptamiðla. Áhersla er lögð á aðferðir en ekki fjölda "vina" eða heimsókna.

Forrit ársins

Forrit sem þykir hafa heppnast best á árinu. Sniðugar lausnir, skýr tilgangur og góð útfærsla.

Hetja ársinsHeiðursverðlaun til einstaklings sem hefur unnið þarft og gott starf á sviði vef- og netmála á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×