Nauðgaði og átti barnaklám 19. mars 2010 06:00 Facebook Maðurinn kynntist ungum stúlkum á Facebook og fékk þær til að hitta sig.
Ríkissaksóknari hefur ákært fésbókarmanninn svokallaða fyrir ýmis brot, þar á meðal gróf kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum, sem hann komst í kynni við á Facebook. Maðurinn er ákærður fyrir nauðgun, þar sem ofbeldi og ólögmætri nauðung var beitt, gagnvart annarri stúlkunni. Hann sætir jafnframt ákæru fyrir frelsisviptingu í þessu tilviki. Þá er maðurinn ákærður fyrir að nauðga hinni stúlkunni með því að notfæra sér yfirburði sína gagnvart henni og neyta aflsmunar. Í ákæru segir einnig að maðurinn sé ákærður fyrir brot gegn því ákvæði hegningarlaga sem bannar kynmök við börn undir fimmtán ára aldri. Þá hefur hann verið ákærður fyrir vörslu barnakláms. Að auki hefur maðurinn verið ákærður fyrir auðgunarbrot, sjö þjófnaði, tvær gripdeildir og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Enn eru til rannsóknar tvö kynferðisbrot mannsins gegn börnum undir fimmtán ára aldri. Ákvörðun um hvort maðurinn verði einnig ákærður fyrir þau verður væntanlega tekin fljótlega, en þau mál eru á leið til ríkissaksóknara. Málið verður þingfest fyrir dómi á mánudag næsta og verður þinghald lokað.- jss
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Innlent Fleiri fréttir Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Sjá meira