Innlent

Rúnar Róberts rausnarlegur á Bylgjunni

Rúnar Róbertsson.
Rúnar Róbertsson.

Rúnar Róbertsson útvarpsmaður verður rausnarlegur á Bylgjunni í dag milli kl. 15 og 16 þegar hann hringir út í vinningshafa í jólaleik Atlantsolíu og Bylgjunnar.

Vinningshafinn verður einhver þeirra dælulyklahafa hjá Atlantsolíu sem dælt hafa á bílinn sinn í desember.

Sá heppni eða sú heppna fær hvorki meira né minna en 250 þúsund króna gjafabréf í Krónunni sem hlýtur að teljast veglegur jólakaupauki.

Allir sem kost eiga á vinningnum eru hvattir til að stilla á Bylgjuna í dag og vera með kveikt á símanum þegar Rúnar hringir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×