Innlent

Vara við mikilli hálku á Hellisheiði og við Svínahraun

Veðrið er reyndar ekki svona slæmt. En það er hált.
Veðrið er reyndar ekki svona slæmt. En það er hált.

Lögreglan á Selfossi varar við lúmskri og mikilli hálku á Hellsiheiðinni og Svínahrauni.

Þar hafa orðið fimm umferðaróhöpp vegna hálku á síðustu tveimur tímum, því full ástæða til þess að biðja ökumenn um að fara varlega.

Veður er annars gott á svæðinu utan stöku éljagangs á Hellisheiðinni. Vegagerðin vinnur við að salta göturnar en lögreglan áréttar að fólk þurfi engu að síður að fara varlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×