Innlent

Eftirlitsnefndin aðhefst ekki vegna fjármála Kópavogsbæjar

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, fagnar niðurstöðu eftirlitsnefndarinnar
Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, fagnar niðurstöðu eftirlitsnefndarinnar
Fram kemur í bréfi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar Kópavogs, dagsettu 17. desember 2010, að hún muni ekki að svo stöddu aðhafast frekar vegna fjármála bæjarins.

Samkvæmt fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir árið 2011 á reksturinn að skila einum milljarði til lækkunar skulda á því ári og svo áfram næstu árin. Bæjarstjórnin hefur jafnframt sett sér það markmið að skuldir sem hlutfall af tekjum verði undir 200% árið 2014. Áætlað er að þetta hlutfall verði 248% vegna þessa árs og að það verði 214% á næsta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, fagnar niðurstöðu nefndarinnar. „Stjórnendur bæjarins hafa sett sér skýr markmið og vandað til áætlanagerðar næstu þriggja ára. Það er afar brýnt að okkur takist að vinda ofan af miklum skuldum bæjarins sem mun létta reksturinn til lengri tíma. Það er ljóst að ekkert má út af bregða og við þurfum að halda stíft í taumana."

Eftirlitsnefndin ritaði Kópavogsbæ bréf þann 31. ágúst síðastliðinn þar sem farið var fram á frekari upplýsingar vegna niðurstöðu ársreiknings fyrir árið 2009. Í bréfinu kom meðal annars fram að miklar skuldir kölluðu á frekari upplýsingaöflun og skoðun á fjármálum sveitarfélagsins.

Kópavogsbær sendi nefndinni umbeðnar upplýsingar og fundaði með henni 23. nóvember þar sem farið var ítarlega yfir fjármálin. Þar var m.a. fjallað um mikilvægi þess að bærinn ynni markvisst að því að lækka skuldir á næstu árum og tekur nýsamþykkt fjárhagsáætlun mið af því.

Eftirlitsnefndin ítrekar í lok bréfsins varnaðarorð til bæjarstjórnar Kópavogs um skuldastöðu bæjarins og segist áfram munu fylgjast með framvindu fjármála Kópavogsbæjar á næstu misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×