Innlent

Missti stjórn á bílnum og valt

Bíll valt á gatnamótum Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar klukkan korter yfir níu í kvöld. Einn maður var í bílnum og komst hann sjálfur út úr honum. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður en hann mun fara til læknisskoðunar til öryggis.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað um tildrög slyssins en snjór er á götunni sem gæti hafa valdið því að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×