Innlent

Harður árekstur við Bröttubrekku - þrennt á slysadeild

Mynd úr safni
Harður árekstur tveggja bifreiða varð við vegamót Vesturlandsvegar og Vestfjarðavegar við Bröttubrekku nú skömmu eftir hádegið. Þrennt slasaðist í árekstrinum og er þessa stundina á leið með sjúkrabíl á slysa- og bráðadeild Landspítalans. Ekki er vitað hvernig fólkið er slasað en það er ekki talið í lífshættu.

Smávægilegar umferðartafir urðu við Bröttubrekku eftir að slysið varð en umferð gengur þar nú óhindrað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×