Erlent

Kate Middleton: Hefði viljað hitta Díönu

Kate Middleton, unnusta Vilhjálms Bretaprins, segir að hún hefði gjarnan viljað hitta Díönu prinsessu sem hafi verið mögnuð fyrirmynd. Líkt og áður hefur komið fram munu Vilhjálmur og Kate ganga í hjónaband á næsta ári.

Með þessari frétt fylgir viðtal Sky fréttastofunnar við þau Kate og Vilhjálm. Í viðtalinu ræða þau um Díönu prinsessu, bónorðið, konungsfjölskylduna, trúlofunarhringinn og framtíðina.

Vilhjálmur bar fram bónorðið þegar þau voru á ferðalagi í Keníu í síðasta mánuði og gaf Kate trúlofunarhring sem móðir hans átti. Stefnt er á hjónaband næsta vor eða sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×