Erlent

Vilhjálmur prins og Kate Middleton giftast

Óli Tynes skrifar
Vilhjálmur prins og Kate Middleton.
Vilhjálmur prins og Kate Middleton.

Breska hirðin hefur tilkynnt að Vilhjálmur prins muni ganga að eiga kærustu sína Kate Middleton á næsta ári. Í fréttum segir að prinsinn hafi beðið föður hennar um leyfi áður en hann bað um hönd hennar. Prinsinn og Kate eru bæði 28 ára gömul. Vilhjálmur er sonur Karls erfðaprins og Díönu prinsessu af Wales. Í tilkynningu frá hirðinni segir að brúðkaupið verði haldið næsta vor eða næsta sumar. Þar segir einnig að Vilhjálmur muni halda áfram herþjónustu sinni í Breska flughernum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×