Innlent

Rannsóknarstarfið hafið hjá kirkjunni

Róbert R. Spanó Niðurstöður nefndarinnar verða líklega ekki gerðar opinberar fyrr en í júní á næsta ári, segir formaður.
Róbert R. Spanó Niðurstöður nefndarinnar verða líklega ekki gerðar opinberar fyrr en í júní á næsta ári, segir formaður.
Kirkjuþing samþykkti samhljóða tilnefningar kirkjuráðs til rannsóknarnefndar á laugardag sem á að rannsaka viðbrögð og starfshætti Þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi vegna kynferðisbrota.

Rannsóknarnefndin er skipuð þeim Róbert R. Spanó, prófessor og forseta lagadeildar Háskóla Íslands (HÍ), Berglindi Guðmundsdóttur, sálfræðingi og klínískum dósent við sálfræðideild HÍ, og Þorgeiri Inga Njálssyni, dómstjóra Héraðsdóms Reykjaness og aðjúnkts við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Kostnaðarumsögn fjármálasviðs Biskupsstofu sem lögð var fram á kirkjuþingi tilgreinir að kostnaður við starf nefndarinnar muni greiðast úr kirkjumálasjóði og er áætlaður á bilinu 10 til 12 milljónir króna, miðað við umfang verkefnisins.

Róbert R. Spanó, formaður nefndarinnar, segir kostnað fyrst og fremst fólginn í vinnuframlagi nefndarmanna og eftir atvikum annarra sem munu aðstoða nefndina við störf hennar. Samkvæmt tillögunni á nefndin að skila af sér rökstuddum niðurstöðum eigi síðar en 1. júní næsta árs og jafnframt að kynna þær opinberlega.

„Vegna umfangs og eðlis verkefnisins tel ég líklegt að nefndin muni þurfa að nýta þann tíma sem hún hefur til fulls,“ segir Róbert. „Niðurstöður nefndarinnar verða aðeins kunngerðar opinberlega þegar starfinu er lokið.“

Nefndin á að fá óheftan aðgang að öllum gögnum kirkjunnar sem kunna að varpa ljósi á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfsmanna kirkjunnar, eftir að ásakanir um kynferðisbrot voru komnar fram og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.

Róbert væntir þess að það gangi eftir og segir hópinn munu hittast á fundi í vikunni.

„Gera má ráð fyrir að verkefnið verði þríþætt. Gagnaöflun í upphafi, síðan viðtöl við þá sem í hlut eiga og starfsmenn kirkjunnar, og loks skýrslugerð og frágangur,“ segir hann. Rannsóknin verður bundin við viðbrögð kirkjunnar við meintum kynferðisbrotum Ólafs Skúlasonar biskups.

„Nefndarmenn hafa þegar rætt saman um verkefnið en fyrsti formlegi vinnufundurinn fer fram í þessari viku,“ segir Róbert.

sunna@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×