Ekki hægt að skipta ævisögum Jónínu og Björgvins Erla Hlynsdóttir skrifar 16. nóvember 2010 10:57 Björgvin G. Sigurðsson og Jónína Benediktsdóttir.
Enginn skilaréttur er á ævisögum þeirra Jónínu Benediktsdóttur og Björgvins G. Sigurðssonar sem seldar eru í verslunum N1. Viðskiptaráðuneytið hefur í samvinnu við Neytendasamtökin sett fram leiðbeinandi verklagsreglur um skilarétt en verslunum er í sjálfvald sett hvort þær fara eftir þeim. Það er því fullkomlega löglegt að meina viðskiptavinum að skipta ógallaðri vöru. „Fólk þarf að kaupa þessar bækur með þá staðreynd í huga að þeim er ekki hægt að skila. Við hvetjum fólk til að vera meðvitað um þetta. Það er í raun það eina sem við getum gert," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. N1 ríður á vaðið í bókaútgáfu fyrir þessi jólin og gefur út ævisöguna „Jónína Ben" og ævisögu Björgvins „Stormurinn - reynslusaga ráðherra." Hvert bókareintak er númerað og gildir sem happadrættismiði, auk þess sem hluti af söluágóða fer til góðgerðarmála. Af þessum ástæðum segjast forsvarsmenn N1 ekki geta leyft fólki að skipta bókunum. N1 hefur þegar látið prenta tíu þúsundn eintök af bókinni um Jónínu og sjö þúsund af bókinni um Björgvin.„Ég segi við fólk að ef það ætlar að gefa þessar bækur í jólagjöf þá verði það að gera sér grein fyrir að sá sem fær gjöfina getur ekki skilað henni eða skipt. Fólk þarf að vera upplýst um þetta og hafa á hreinu að þegar það gefur þessar bækur að viðkomandi vilji fá bókina," segir Jóhannes. Þannig getur fólk mögulega setið uppi með fleiri en eitt eintak af sömu bókinni ef margir ákveða að gefa hana. „Það væri nú voða lítið gaman," segir hann. Jóhannes bendir á að N1 sé alls ekkert að fela að ekki sé hægt að skila bókunum. Fyrirtækið sé því í fullum rétti. Hann tekur þó fram að flestir þeir sem selja bækur gefi fólki kost á að skipta þeim, og setja jafnvel á þær sérstaka skiptimiða til að auðvelda fólki skiptin. „Við hvetjum verslanir til að þjóna neytandanum fyrst og fremst," segir Jóhannes. Leiðbeinandi reglur um skilarétt má lesa hér. Neytendasamtökin hvetja fólk sérstaklega til að beina viðskiptum sínum til verslana sem hafa tekið reglurnar upp. Lista yfir þær verslanir sem tilkynnt hafa samtökunum að þar séu reglur um skilarétt virtar má sjá hér.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Innlent Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Innlent Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Innlent Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Dómi í máli Alberts áfrýjað Innlent Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Innlent Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Innlent Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Fleiri fréttir Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar Framboðslisti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður Fagnar 400 nýjum störfum við Hvammsvirkjun Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Þau verða fulltrúar Íslands á COP29 í Aserbaídsjan Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Verkfall í MR samþykkt í annarri tilraun Mörg börn sem beita ofbeldi hafa orðið fyrir því sjálf Ríkið telur ólöglega boðað til verkfalls lækna Þverárfjallsvegur lokaður vegna eldsvoða í bíl Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Steinþór hafi verið að berjast fyrir lífi sínu Dómi í máli Alberts áfrýjað „Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Sjá meira