Segir kraftaverkadrykkinn skaðlausan Valur Grettisson skrifar 13. nóvember 2010 11:21 Óli Sólimann „
Drykkurinn er algjörlega skaðlaus," segir Óli Sólimann en engiferdrykkur hans, Aada frá My Secret, var innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga sem ekki var heimild fyrir. Á umbúðum drykksins komu fram heilsufullyrðingar eins og að drykkurinn væri hollur orkudrykkur, vatnslosandi, vörn gegn ýmsum kvillum og að hann skerpti athygli. Við þetta gerði Matvælastofnun athugasemdir sem varð til þess að tilkynning var sett á heimasíðu stofnunarinnar þar sem tilkynnt var að drykkurinn væri innkallaður. Þá kom fram að nýjar vörur, á vegum My secret, hefðu fengið nýjar merkingar, sem innihéldu ennþá heilsufullyrðingar sem ekki væri heimild fyrir. Óli viðurkennir að það sé erfitt að sanna vísindalega sumar fullyrðingarnar sem finna mátti á merkimiðunum. Hann fullyrti að hann væri búinn að breyta innihaldslýsingunni með þeim hætti að hún stæðist reglur. „Þetta er algjörlega skaðlaust og ekki ástæða til þess að taka drykkinn af markaði," segir Óli sem bendir á að drykkurinn innihaldi aðeins lífræn efni eins og engifer. „Það eru engin aukaefni eða neitt þannig í drykknum," segir Óli.
Tengdar fréttir Kæfa og kraftaverkadrykkur afturkallað af markaði Engiferdrykkurinn Aada frá My Secret hefur verið innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga en tilkynningu þess eðlis má finna á heimasíðu matvælastofnunnar. 13. nóvember 2010 09:32 Mest lesið Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga Innlent Alþjóðastarf þingmanna álitið sem „fyllerís- og fríferðir“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Staðan er bara sú að það verður slys hérna“ Innlent Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Innlent Skorinn með hníf á skemmtistað í miðbænum Innlent Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Innlent Kallar eftir umboði þjóðarinnar til breytinga Innlent Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Innlent Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Innlent Fleiri fréttir Kallar eftir umboði þjóðarinnar til breytinga Skorinn með hníf á skemmtistað í miðbænum Alþjóðastarf þingmanna álitið sem „fyllerís- og fríferðir“ Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga „Staðan er bara sú að það verður slys hérna“ Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar Framboðslisti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður Fagnar 400 nýjum störfum við Hvammsvirkjun Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Þau verða fulltrúar Íslands á COP29 í Aserbaídsjan Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Verkfall í MR samþykkt í annarri tilraun Mörg börn sem beita ofbeldi hafa orðið fyrir því sjálf Ríkið telur ólöglega boðað til verkfalls lækna Þverárfjallsvegur lokaður vegna eldsvoða í bíl Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Steinþór hafi verið að berjast fyrir lífi sínu Dómi í máli Alberts áfrýjað „Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Sjá meira
Kæfa og kraftaverkadrykkur afturkallað af markaði Engiferdrykkurinn Aada frá My Secret hefur verið innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga en tilkynningu þess eðlis má finna á heimasíðu matvælastofnunnar. 13. nóvember 2010 09:32