Innlent

Erill hjá lögreglunni í nótt

Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í nótt, en einkum var um útköll vegna hávaða og drykkjuláta að ræða.

Að sögn lögreglu var nóttin þó þokkalega góð að öðru leyti. Engar líkamsárásir voru kærðar, en lögregla skaut hins vegar skjólshúsi yfir nokkra útingangsmenn sem gistu fangageymslur í nótt.

Ein kæra vegna líkamsárásar barst lögreglunni á Suðurnesjum eftir nóttina, en nokkur erill var í umdæminu vegna slagsmála og drykkjuláta í nótt. Þá voru tveir ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur, og tveir fyrir fíkniefnaakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×