Erlent

Tvær sprengingar í miðborg Stokkhólms - einn látinn

Stokkhólmur.
Stokkhólmur.

Tvær sprengingar skóku miðborg Stokkhólms um klukkan fjögur í dag með þeim afleiðingum að einn lést og tveir slösuðust. Um er að ræða tvær bílsprengjur samkvæmt upplýsingum frá sænsku lögreglunni.

Fyrri bíllinn margsprakk samkvæmt lögreglunni en svo virðist vera sem rörasprengja hafi verið notuð til verknaðarins. Annar bílinn sprakk í næstu götu frá fyrri sprengingunni en þar lést einn maður.

Lögreglan segir ekki hættu á fleiri sprengingum og vill ekki geta hvað hafi átt sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×