Innlent

Mikið tjón vega vatnsleka í fjölbýlishúsi á Akureyri

Mikið tjón varð í nokkrum íbúðum og í sameign í fjölbýlishúsi á Akureyri í nótt, þegar krani undir eldhúsvaski gaf sig og kalt vatn tók að flæða um allt.

Þetta var á fjórðu hæð, en einhverra hluta vegna náði vatn að komast inn í íbúðirnar fyrir neðan og alveg niðru í kjallara. Þegar húsráðandi varð lekans var upp úr klukkan eitt í nótt, hringdi hann á slökkvilið, sem kom og dældi vatni út. síðan komu starfsmenn ræstifyrirtækja á vettvang til frekari hreinsunar.

Ljóst er að töluverðar skemmdir urðu í nokkrum íbúðum, en hreinsunarstarfi er ekki lokið og tjónið hefur ekki verið metið endanlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×