Innlent

Hunsa tilmæli um úrbætur

Viðhald og öryggis­áætlun vantar fyrir sundlaugina.
Viðhald og öryggis­áætlun vantar fyrir sundlaugina.
Dong Fang Salon – nudd- og snyrtistofa hefur fengið áminningu frá Heilbrigðis­eftirliti Reykjavíkur eftir að hafa ekki orðið við ítrekuðum kröfum um úrbætur vegna brota á reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum í rekstri sundlaugarinnar á Hótel Loftleiðum.

Félagið hefur allar götur frá 3. júní hunsað að gera öryggisáætlun um hvernig eigi að tryggja öryggi gesta, útbúa hreingerningar­áætlun fyrir sundlaugarsvæðið, lagfæra rakaskemmdir í hvíldar­herbergjum endurnýja slitnar flísar og yfirfara festingar á gufubaðsbekkjum. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×