Innlent

Rjúpnaveiðieftirlit úr þyrlu Landhelgisgæslunnar

Erla Hlynsdóttir skrifar
Lögreglan kemst yfir mun stærra svæði og fær betri yfirsýn yfir rjúpnaveiðilendur þegar hún nýtur aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar. Arnar Geir Magnússon, lögreglumaður á Ólafsvík, fékk að fljóta með TF-Líf í gæsluferð á laugardag og hefur umhverfisráðuneytið látið útbúa myndband úr ferðinni þar sem einnit er rætt við Arnar Geir, sem og Auðunn F. Kristinsson, yfirstýrimann hjá Landhelgisgæslunni. Myndbandið má skoða með því að smella á tengilinn hér að ofan.

Að sögn Auðuns er þetta í annað skiptið á þessu veiðitímabili sem Landhelgisgæslan nýtir þyrluna í eftirlit með rjúpnaveiðum. Í ferðinni var lent hjá tveimur skyttum og var önnur þeirra án skotvopnaleyfis. Byssa hennar og skotvopn voru því gerð upptæk. Vísir greindi frá því í morgun að fjórtán rjúpnaveiðimenn hafa verið teknir á þessu veiðitímabili vegna brota, aðallega brota á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Auðunn tekur fram að rjúpnaveiðieftirlitinu sé sinnt samhliða öðrum störfum Landhelgisgæslunnar.

Að sögn Arnars Geirs er athugað hvort veiðimenn hafi tilskylin leyfi, veiðileyfi og vopnaleyfi, auk þess sem þeir þurfa að hafa veiðikort og heimild til að veiða einmitt þar sem þeir eru við veiðar. Einnig eru dæmi um að lögreglan skoði feng veiðimanna til að tryggja að þeir hafi farið að lögum og reglum.

Ljósmyndir úr ferðinni má skoða á vef umhverfiráðuneytisins en þar er myndbandið einnig aðgengilegt ásamt frekari upplýsingum.

Minnt er á að rjúpnaveiði er aðeins heimil föstudaga, laugardaga og sunnudaga, til og með 5. desember. Því eru níu veiðidagar eftir af þessu tímabili.




Tengdar fréttir

Fjórtán teknir vegna brota við rjúpnaveiði

Lögreglan á Snæfellsnesi lagði hald á skotvopn og skotfæri rjúpnaskyttu við Dagverðará á laugardag þar sem skyttan hafði ekki skotvopnaleyfi. Lögreglan fór þennan daginn í gæsluflug með áhöfn TF-Líf og var ákveðið að sinna rjúpnaveiðieftirliti úr lofti. Lítið var um veiðimenn en afskipti voru höfð af tveimur rjúpnaskyttum, þeim við Dagverðará og annarri skammt ofan við Grundarfjörð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×