Innlent

Átta í haldi eftir líkamsárásir

Gissur Sigurðsson skrifar

Átta manns eru enn í haldi lögreglu vegna rannsóknar á tveimur alvarlegum líkamsárásum, sem framdar voru á höfuðborgarsvæðinu í gær. Fyrst var ráðist á mann í Hafnarfirði laust fyrir hádegi í gær.

Lögregla handtók sex manns í tengslum við það mál og þolandinn var fluttur á Slysadeild Landsspítalans þar sem hann er enn. Hin árásin var svo gerð í Þingholtonum klukkan hálf fimm síðdegis. Samkvæmt heimildum var hún enn hrottalegri og er þolandi hennar enn á sjúkrahúsi. Tvennt var handtekið vegna rannsóknar þess máls.

Lögregla verst allra frekari fregna af málinu þar sem rannsókn þeirra er á viðkvæmu stigi. Því er fréttastofunni ekki kunnugt um aðdraganda árásanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×