Innlent

Skallaði mann fyrir framan lögregluna

Selfoss
Selfoss
Verið er að yfirheyra strák um tvítugt sem skallaði annan mann um þrjú leytið í nótt. Atvikið átti sér stað á bílastæði við Eyrarveg á Selfossi en lögregla fékk tilkynningu um að tveir hópar ættu í einhverjum útistöðum.

Þegar lögreglan mætti á vettvang, til að róa mannskapinn niður, skallaði einn mannanna annan með þeim afleiðingum að frammtönn losnaði.

Árásarmaðurinn var handtekinn og á honum fannst falsað greiðslukort. Hann gisti fangageymslur og byrjað var að yfirheyra hann um tvöleytið í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×