Innlent

Fólskuleg líkamsárás í Aðalstræti

Fólskuleg líkamsárás ver gerð á mann, þegar hann var staddur á móts við Hótel Plasa við Aðalstræti í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö í nótt.

Þrír menn gengu í skrokk á honum og veittu honum áverka á höfði og víðar. Hann virðist hafa komist inn í anddyri hótelsins, því árásarmennirnir unnu skemmdir á útidyrunum.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang voru árásarmennirnir á bak og burt og er ekki vitað hverjir þeir eru, eða hver málsatvik voru.

Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að sárum hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×