Erlent

Skar eistun undan eldgömlum kærasta dóttur sinnar

Kærasti dóttur Helmuts var tíu árum eldri en hann sjálfur
Kærasti dóttur Helmuts var tíu árum eldri en hann sjálfur Mynd úr safni / Anton Brink
Þýskum föður misbauð algjörlega eftir að hann komst að því að sautján ára dóttir hans hefði eignast 57 ára kærasta. Faðirinn, hinn 47 ára Helmut Seifert, leitaði fyrst til lögreglu vegna málsins en fékk þau svör að lögreglan gæti ekkert gert þó stúlkan væri að hitta sér mun eldri mann.

Helmut greip því til sinna ráða, elti uppi kærasta dóttur sinnar og skar undan honum.

„Þið sögðuð að þið gætuð ekki stoppað hann, þannig að ég gerði það sjálfur," sagði Helmut við lögreglumennina þegar hann var handtekinn. „Ég leit á það sem skyldu mína sem föður."

Helmut fékk til liðs við sig tvo samstarfsmenn úr verksmiðjunni sem hann vinnur í, fór með þeim heim til kærastans, neyddi hann til að gyrða niður um sig buxurnar og skar af honum eistun á meðan hann var með fullri meðvitund, að því er breska Daily Telegraph greinir frá. Minnstu munaði að kærastinn léti lífið við aðfarirnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tóku mennirnir eistun með sér brott.

Helmut neitar að gefa upp hverjir voru með honum að verki.

Hann hefur játað sök og má búast við að vera kærður fyrir tilraun til manndráps.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×