Innlent

Vann 250 þúsund krónur í beinni útsendingu

Hugi Hreiðarsson frá Atlantsolíu afhendir Rósu Mörtu Guðnadóttur frá Eyrarbakka vinninginn.
Hugi Hreiðarsson frá Atlantsolíu afhendir Rósu Mörtu Guðnadóttur frá Eyrarbakka vinninginn.
„Ég er svo aldeilis hissa, þakka þér kærlega fyrir," sagði Rósa Marta Guðnadóttir frá Eyrarbakka þegar Rúnar Róbertsson á Bylgjunni tilkynnti henni að hún hefði unnið 250 þúsund króna gjafabréf í Króuna.

Rósa Marta ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum þegar Rúnar hringdi í hana. „Hvað ertu að segja? Tvö hundruð og fimmtíu þúsund?"

Glaðningurinn er hluti af jólaleik Atlantsolíu og Bylgjunnar en dregið var úr einhverjum þeirra fjölmörgu sem er með dælulykil frá Atlantsolíu og hafa dælt á bílinn sinn í desember.

Hægt er að hlusta á viðbrögð Rósu Mörtu þegar Rúnar Róbertsson hringdi í hana fyrr í dag með því að smella á hlekkinn hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×