Erlent

Gerry Adams vill skipta um þing

Óli Tynes skrifar
Gerry Adams.
Gerry Adams.

Gerry Adams leiðtogi Sinn Fein á Norður-Írlandi hefur lýst því yfir að hann ætli að að stíga úr sætum sínum bæði á Norður-Írska þinginu og því breska. Þess í stað ætlar hann að bjóða sig fram til þings í Írska lýðveldinu.

Adams sagði stuðningsmönnum sínum á fundi í gær að hann vildi taka þátt í baráttunni gegn óskynsamlegri efnahagsstefnu í báðum hlutum eyjarinnar. Sinn Fein var hinn pólitíski armur Írska lýðveldishersins, sem hún hefur verið lagður niður. Hann hefur oft verið sakaður um að hafa einnig verið við stjórn í hernaðararminum en jafnan neitað því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×