Niðurlægjandi líkamsárás í Keflavík tekin upp á myndband 28. janúar 2010 11:45 Óhugnanlegt og niðurlægjandi myndskeið.
Gróft og niðurlægjandi myndskeið má finna á vefsíðunni Youtube af íslenskum unglingum að misþyrma öðrum pilt. Í athugasemdakerfi fyrir neðan myndbandið stendur að piltarnir séu fæddir 1995 og eru þeir því fimmtán ára gamlir. Myndbandið var sett inn á vefinn fyrir mánuði síðan. Árásin virðist hafa átt sér stað í Keflavík, nánar tiltekið á Vatnsholti. Myndbandið er hljóðskreytt með tónlist líkt og um eðlilegt afþreyingaefni væri að ræða en á því má sjá einn ungling ganga í skrokk á öðrum pilti. Allt í kring er hópur unglinga sem fylgist með aðförinni sem er bæði gróf og niðurlægjandi. Í einu broti myndskeiðsins má sjá þriðja piltinn blanda sér inn í áflogin og slær fórnalambið bylmingshögg í andlitið. Að lokum nær árásarmaðurinn að snúa fórnalambið niður og lætur höggin dynja linnulaust á honum. Síðan rífur hann drenginn upp, eins og sést á myndum hér við hliðina á, og heldur áfram að slá hann ítrekað í andlitið. Allan tímann er árásin tekin upp, sennilega á farsíma. Svo hefur hún verið sett inn á myndbandasíðuna Youtube þar sem allir geta nálgast myndbandið. Árásin minnir um margt á alvarlega líkamsárás þar sem þrír piltar misþyrmdu yngri pilt í Njarðvík fyrir um tveimur árum síðan. Þeir piltar voru ákærðir fyrir alvarlega líkamsárás og að lokum dæmdir fyrir brotið. Ekki er ljóst hverjir tóku myndbandið upp eða eiga hlut að árásinni sem um ræðir. Ekki verður vísað á myndbandið hér.
Mest lesið Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Erlent Engar hvalveiðar Hvals í sumar Innlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Innlent Fleiri fréttir Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Aðalsteinn leiðir samráðshóp um öryggis- og varnarmál Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá NEL telur orðfæri lögreglumanna ekki tilefni til endurupptöku Sjá meira