Innlent

Lögreglan í borginni sinnti 400 útköllum um helgina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti í miklu annríki um helgina og sinnti um 400 útköllum frá klukkan tíu á föstudagskvöldið og þar til snemma í morgun.

Meðal annars vegna sex innbrota, fjögurra fíkniefnamála, 15 umferðaróhappa og fimm líkamsárása.

Einnig voru 22 ökumenn teknir úr umferð vegna ölvunar við akstur og tíu vegna fíkniefnaaksturs.

Þá er ótalinn ámóta fjöldi verkefna, sem ekki flokkast undir útköll, eins og til dæmis vegan umferðarlagabrota.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×