Erlent

42 látnir og fjölmargir slasaðir eftir bruna í Kína

Boði Logason skrifar
Að minnsta kosti 42 eru látnir og yfir 90 eru slasaðir.
Að minnsta kosti 42 eru látnir og yfir 90 eru slasaðir. Mynd/AFP
Að minnsta kosti 42 eru látnir og yfir 90 eru slasaðir eftir að eldur kom upp í 28 hæða háhýsi í Sjanghæ í Kína í dag. Margir íbúar þurftu að flýja út á vinnupalla sem eru við húsið.

Mikinn reyk lagði yfir borgina og sást reykjamökkurinn úr marga kílómetra fjarlægð. Um sex klukkutíma tók að slökkva eldinn.

Sjónarvottar segja að kviknað hafi í einhverskonar byggingarefni sem fast var við húsið en verið var að gera húsið upp. Þrátt fyrir það hefur slökkvilið ekki staðfest hvað það var sem olli brunanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×