Erlent

Fimm hermenn NATO féllu

Ellefu manns fórust í átökum í Afganistan í gær, þar á meðal danskur hermaður.
Ellefu manns fórust í átökum í Afganistan í gær, þar á meðal danskur hermaður.
Ellefu manns fórust í átökum í Afganistan í gær, þar á meðal fimm hermenn NATO og þrír afganskir lögreglumenn.

Einn af hermönnum NATO sem féllu var danskur og gerðist það í suðurhluta Afganistans eftir að vegasprengja sprakk. Túlkur særðist einnig í árásinni, að sögn danska hersins. Um sjö hundruð danskir hermenn eru í Afganistan, flestir í Helmand-héraðinu. Þar var einnmitt breskur hermaður drepinn í gær.

Það sem af er þessum mánuði hefur 31 meðlimur sambandsríkjanna látist í landinu.- fb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×