Erlent

Margrét Þórhildur kostar sitt

Óli Tynes skrifar
Margrét Þórhildur Danadrottning.
Margrét Þórhildur Danadrottning.

Danir hafa nú í fyrsta skipti verið upplýstir um kostnað við rekstur konungsfjölskyldunnar. Hún kostar skattgreiðendur um sjö milljarða íslenskra króna á ári. Lars Lökke forsætisráðherra er ekki í nokkrum vafa um að þeim peningum sé vel varið. „Konungsfjölskyldan sameinar danska fólkið sem þjóð. Hún er rauði þráðurinn í gegnum alla sögu okkar og gerir Danmörku að því sem hún er," segir forsætisráðherrann. Hann dregur mjög í efa að það væri ódýrara að reka lýðveldi með forseta. Þvert á móti myndi það að líkindum kosta skattgreiðendur meira fé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×