Körfubolti

Kristrún: Stolt í svona liði

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Úr leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
Úr leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm

„Það er ekki hægt að segja neitt annað en maður er stoltur að vera í svona liði. Þetta voru flottir leikir og flottar viðureignir á móti Keflavík en við vorum bara óheppnar að þetta datt ekki með okkur í dag," sagði Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður Hamars, eftir tap gegn KR í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.

Kristrún spilaði vel í kvöld og var stigahæst í liði gestanna ásamt Koren Schram með 24 stig. Kristrúnu fannst ekki mikill munur vera á liðunum í kvöld en það datt ekki þeirra megin þetta kvöldið.

„Ég veit ekki hver munurinn var. Mér fannst þetta bara ekki detta okkar megin. Allir dómar voru þeim í hag fannst mér en þetta hefði alveg getað farið okkar megin og lítill munur á liðunum. Við förum stoltar heim en auðvitað vildum meira þannig maður er svona að jafna sig á þessu. Við áttum fullt af góðum leikjum í vetur og ekki hægt annað en að vera ánægðar með tímabilið," sagði Kristrún svekkt í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×