Erlent

Elton John orðinn pabbi

Á síðasta ári reyndu Elton og David að ættleiða rúmlega ársgamlan munaðarlausan dreng frá Úkraínu.
Á síðasta ári reyndu Elton og David að ættleiða rúmlega ársgamlan munaðarlausan dreng frá Úkraínu.

Breski popparinn Elton John varð faðir í fyrsta sinn á jóladag þegar hann og eiginmaður hans, David Furnish, eignuðust son með hjálp staðgöngumóður, að því er fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar.

Zachary Jackson Levon Furnish-John fæddist í Kaliforníu en nafn konunnar sem gekk með drenginn verður ekki gefið upp. Á síðasta ári reyndu Elton og David að ættleiða rúmlega ársgamlan munaðarlausan dreng frá Úkraínu án árangurs. Í yfirlýsingu þeirra kemur fram að Zachary heilsist vel og að þeir séu himinlifandi.

Elton og David gengu í hjónaband árið 2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×