Innlent

Vélar frá Grænlandi og Ísafirði náðu að lenda í Reykjavík

Boði Logason skrifar
Mikil þoka hefur verið í Reykjavík í dag.
Mikil þoka hefur verið í Reykjavík í dag. Mynd/HS
Flugvélar á vegum Flugfélags Íslands sem voru að koma frá Kulusuk á Grænlandi og Ísafirði náðu að lenda á Reykjavíkurflugvelli nú um fimm leytið, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu. Mikil þoka hefur verið í Reykjavík síðdegis í dag.

Flugvél sem var að koma frá Akureyri síðdegis í dag þurfti að lenda í Keflavík í stað þess að lenda á Reykjavíkurflugvelli vegna þoku. Að öðru leyti hefur flug gengið vel í dag. Nokkrar vélar eiga að lenda á Reykjavíkurflugvelli í kvöld en ekki er víst hvort að svo verði vegna mikillar þoku í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×