Innlent

Þrír á slysadeild eftir harðan árekstur

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bíla á Hafnarfjarðarvegi á milli Kópavogs og Garðabæjar um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega þeir eru slasaðir, en bílarnir eru mikið skemmdir.

Þá slasaðist ökumaður bíls, sem valt út af veginum skammt frá Búðardal í gærkvöldi, en ökumaður slapp ómeiddur úr bíl sínum, sem valt út af veginum við Breiðdalsvík um svipað leiti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×