Innlent

Fjöldi mótmælenda af Suðurlandi afhentu undirskriftir

Fjörug mótmæli.
Fjörug mótmæli.

Fjöldi fólks af Suðurlandi mótmælti fyrir utan Alþingi í dag og afhenti meðal annars Guðbjarti Hannessyni, félagsmála- og tryggingamálaráðherra, blóm og undirskriftir í tilefni mótmælanna.

Tvær þétt setnar rútur fóru um hálfþrjúleytið í dag frá Selfossi áleiðis til Reykjavíkur. Fjöldi fólks fylgdi rútunum á einkabílum.

Tilefnið var að skora á ríkisstjórn og Alþingi að koma í veg fyrir lokun sjúkrahúsanna á Selfossi, Vestmannaeyjum og á Höfn vegna niðurskurðar á fjárlögum.

Eins og Vísir greindi frá í gær tóku á níunda þúsund manns þátt í undirskriftasöfnun á Suðurlandi þar sem mótmælt var stórfelldum niðurskurði á framlögum til heilbrigðismála sem boðaður er á Suðurlandi í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×