Hrottinn í Laugardal fundinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. nóvember 2010 12:46 Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Tuttugu og þriggja ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem var handtekinn í gær, hefur játað að hafa ráðist á 16 ára stúlku á göngustíg við Suðurlandsbraut í Reykjavík í síðasta mánuði. Að öðru leyti ber hann við minnisleysi vegna fíkniefnaneyslu. Málið vakti mikinn óhug enda átti árásin sér stað um miðjan dag. Stúlkan hlaut slæma áverka á höfði en komst við illan leik upp á Suðurlandsbraut þar sem vegfarandi kom henni til aðstoðar og hringdi á sjúkrabíl. Í kjölfarið leituðu lögreglubílar og lögreglumenn á mótorhjólum að manninum í Laugardalnum og víðar, án árangurs. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Ráðist á unga konu - árásarmanns leitað Ung stúlka, 16 til 17 ára gömul, var flutt á slysadeild á fjórða tímanum í dag eftir að á hana var ráðist. Að sögn lögreglu var um grófa árás að ræða og er árásarmannsins leitað. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er stúlkan í skoðun og frekari upplýsingar eru ekki gefnar að svo stöddu. 11. október 2010 16:07 Hrottinn í Laugardal ófundinn Maður sem um hábjartan dag réðst á sextán ára gamla stúlku að tilefnislausu í Laugardalnum er ófundinn og er málið óupplýst. Stúlkan er á batavegi. Stúlkan var að ganga heim úr skólanum, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, og stytti sér leið í gegnum Laugardalinn þegar maðurinn réðst á hana upp úr þurru síðdegis hinn 11. október síðastliðinn. 21. október 2010 12:07 Árásarmanns enn leitað Mannsins, sem réðst á stúlku í Reykjavík í dag,. er enn leitað. Samkvæmt lýsingu lögreglu er hann um 170 sentimetrar á hæð, skolhærður og meðalmaður að vexti. Hann var í dökkum jakka eða dökkri peysu, í hvítum skóm með rauðum röndum. 11. október 2010 16:59 Mest lesið Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Esjustofa í endurnýjun lífdaga Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Bandaríkin muni semja Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Kynnir áform um að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Jómfrúarræða um Súðavíkurhlíð og skömmu síðar lenti sonur hans þar í slysi Þakgarðar og bílalyfta í stað bensínstöðvar Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Birtir niðrandi ummæli sem lýsi hatri í garð trans fólks Veiðigjöldin verði keyrð í gegn Óvíst hvort að tvöföldun rýma muni nægja Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Markaðir kættust eftir að Trump frestaði ofurtollum Bein útsending: Geðheilbrigði fyrir öll Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Sjá meira
Ráðist á unga konu - árásarmanns leitað Ung stúlka, 16 til 17 ára gömul, var flutt á slysadeild á fjórða tímanum í dag eftir að á hana var ráðist. Að sögn lögreglu var um grófa árás að ræða og er árásarmannsins leitað. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er stúlkan í skoðun og frekari upplýsingar eru ekki gefnar að svo stöddu. 11. október 2010 16:07
Hrottinn í Laugardal ófundinn Maður sem um hábjartan dag réðst á sextán ára gamla stúlku að tilefnislausu í Laugardalnum er ófundinn og er málið óupplýst. Stúlkan er á batavegi. Stúlkan var að ganga heim úr skólanum, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, og stytti sér leið í gegnum Laugardalinn þegar maðurinn réðst á hana upp úr þurru síðdegis hinn 11. október síðastliðinn. 21. október 2010 12:07
Árásarmanns enn leitað Mannsins, sem réðst á stúlku í Reykjavík í dag,. er enn leitað. Samkvæmt lýsingu lögreglu er hann um 170 sentimetrar á hæð, skolhærður og meðalmaður að vexti. Hann var í dökkum jakka eða dökkri peysu, í hvítum skóm með rauðum röndum. 11. október 2010 16:59