Innlent

Hjáleið opnuð við Seljalandsá

Búið er að opna hjáleið eftir varnargarði en Þjóðvegi eitt var lokað vegna skemmda á brú yfir Seljalandsá. Leiðin ætti að vera öllum ökutækjum fær.

Miklir vatnavextir eru í Seljalandsá sem er í nágrenni Markarfljóts. Ökumenn eru beðnir um að fara varlega.

Rétt er að vekja athygli ökumanna á því að nokkuð vatn er á hjáleiðinni og þurfa menn því að fara varlega, allra minnstu bílar gætu lent í vandræðum.

Lögregla og vegagerð er á vettvangi og er vonast til að hjáleiðin verði nothæf áfram.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×