Erlent

Suður Kórea að hefja umfangsmestu heræfingu sína

Suður Kórea er nú að hefja umfangsmestu heræfingu sína í sögunni aðeins 20 kílómetra frá landamærunum að Norður Kóreu.

Hundruðir hersveita, skriðdreka, þyrlna og orrustuþota streyma nú til svæðisins. Yfirvöld í Suður Kóreu viðurkenna fúslega að þessari heræfingu sé fyrst og fremst ætlað að sýna Norðurkóreumönnum hernaðstyrk sinn.

Norðurkóreumenn saka nágranna sína um stríðsæsingar vegna heræfingarinnar en mótmæli þeirra gegn henni eru á lægri nótum en áður, að sögn BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×