Innlent

Dómurum verður fjölgað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson kynnti frumvarp um fjölgun dómara í ríkisstjórn í morgun. Mynd/ Vilhelm.
Ögmundur Jónasson kynnti frumvarp um fjölgun dómara í ríkisstjórn í morgun. Mynd/ Vilhelm.
Hæstaréttardómurum og héraðsdómurum verður fjölgað samkvæmt frumvarpi sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun. Ögmundur segir að fjölgunin sé komin til vegna landsdómsins, en fimm af níu dómurum úr Hæstarétti eiga sæti þar, en einnig vegna aukins álags á dómstóla vegna bankahrunsins. Gert er ráð fyrir að fjölgun dómaranna verði fjármögnuð með hækkun dómsmálagjalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×