Innlent

Áhöfnin á Goðafossi heiðruð fyrir hetjulega framgöngu

Á myndinni eru Nikulás A. Halldórsson, skipstjóri á Goðafossi og Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélagsins
Á myndinni eru Nikulás A. Halldórsson, skipstjóri á Goðafossi og Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélagsins

Áhöfnin á Goðafossi skipi Eimskipafélagsins var í gær heiðruð fyrir fyrir hetjulega framgöngu við slökkvistörf þegar eldur kom upp í skipinu 30. október síðastliðinn. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að öguð vinnubrögð og snarræði áhafnarinnar hafi skipt sköpum um að hvorki urðu slys á mönnum né alvarlegt tjón á skipinu.

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips segir að áhöfnin hafi unnið hetjusamlegt björgunarstarf við einar verstu aðstæður sem hægt sé að hugsa sér. „Það sannaði sig eins og oft áður að menntun og þjálfun Íslenskar sjómanna er með því besta sem gerist í heiminum og við verðum að hlúa vel að menntun þeirra í framtíðinni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×