Innlent

Eldur í hesthúsi

Að sögn sjónarvotta er mikill reykur í grennd við hesthúsið.
Að sögn sjónarvotta er mikill reykur í grennd við hesthúsið. Mynd/Daníel Rúnarsson
Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á ellefta tímanum í kvöld vegna elds í hesthúsi skammt frá íþróttahúsinu við Varmá í Mosfellsbæ. Þegar slökkviliðismenn komu á vettvang hafði eldur læst sig í þaki hesthússins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er búið að ná öllum hrossum sem voru í húsinu út. Að sögn sjónarvotta er mikill reykur í grennd við hesthúsið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×