Innlent

Þekktir Íslendingar lýsa skömm á Páli og Óðni

Þráinn Bertelsson er einn þeirra sem hefur skráð sig á listann.
Þráinn Bertelsson er einn þeirra sem hefur skráð sig á listann.
Um 200 manns hafa skráð sig á vefsíðuna Uppsogn.com. Á síðunni segir að undirritaðir lýsi skömm á því hvernig Páll Magnússon útvarpsstjóri og Óðinn Jónsson fréttastjóri rækja lýðræðislegar skyldur stofnunarinnar. „Við sættum okkur ekki við skoðanakúgun undir yfirskini hlutleysis," segir á síðunni.

Margir þekktir Íslendingar hafa skráð sig á síðuna, þar má meðal annars nefna Andra Snæ Magnason, rithöfund, Þráinn Bertelsson, rithöfund og alþingsmann, Vigdísi Grímsdóttur, rithöfund, Ellen Kristjánsdóttur, tónlistarmann, Gyrði Elíasson, rithöfund og Ármann Jakobsson íslenskufræðing og rithöfund.

Hægt er að fara á síðuna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×