Innlent

Gómuðu laumufarþega í Sundahöfn

Öryggisverðir á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn handsömuðu í nótt útlending, sem hafði komist inn á svæðið og ætlaði að laumast um borð í flutningaskip, sem fer héðan til Bandaríkjanna.

Lögregla sótti manninn, sem er skilríkjalaus og hefur ekki gefið skýringar á ferðum sínum.

Hann var nestaður drykkjarvatni og döðlum, sem hann hefur væntanlega ætlað að neyta á leið sinni yfir hafið. Enn er óljóst hvers lenskur hann er, en hann verður yfirheyrður með aðstoð túlks í dag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×