Innlent

Transfitusýrulög undirrituð í dag

Frá undirskrift reglugerðar um hámarksmagn transfitusýra. Á myndinni eru f.v. Baldur P. Erlingsson lögfræðingur í ráðuneytinu, Jón Bjarnason ráðherra, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir aðstoðarmaður ráðherra. Á myndina vantar Ingimar Jóhannsson skrifstofustjóri í ráðuneytinu.

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifaði í dag undir reglugerð um hámarksmagn transfitusýra í matvælum.

Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að markaðssetja matvæli sem innihalda meira en tvö grömm af transfitusýrum í hverjum hundrað grömmum af heildarfitumagni.

Reglur þessar gilda um fitu og önnur matvæli sem innihalda fitu, hvort sem er innihaldsefni eða afleiðingar framleiðsluferlis. Reglugerðin gildir ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi.

Frestur til að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar er til 1. ágúst 2011.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×