Erlent

Scarlett og Ryan skilja

Hollywood-stjörnurnar Scarlett Johansson og Ryan Reynolds eru skilin. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem þau sendu frá sér í kvöld og bandarískir fréttamiðlar greina frá. Scarlett og Ryan segjast skilja í góðu og að ákvörðunin hafi verið tekin eftir mikla yfirlegu.

Scarlett og Ryan giftust í september 2008. Brúðkaupið fór fram á rólegum stað rétt fyrir utan Vancouver í Kanada en Ryan er kanadískur. Í sumar var greint frá því að parið hugðist ættleiða barn annaðhvort frá Eþíópíu eða Líbíu.

Scarlett sem einungis 26 ára hefur verið ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood undanfarin ár. Einna þekktust er hún fyrir hlutverk sitt í myndinni Lost in Translation þar sem hún lék á móti Bill Murray.

Ryan sem er átta árum eldri lék í þáttunum Two Guys, a Girl and a Pizza Place á árunum 1998 til 2001. Síðan þá hefur hann leikið í myndum á borð við Wan Wilder og Just Friends. Ryan var eitt sinn trúlofaður söngkonunni Alanis Morissette.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×