Innlent

Vigdís sæmd Verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vigdís Finnbogadóttir hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu. Mynd/ Anton.
Vigdís Finnbogadóttir hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu. Mynd/ Anton.
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, var í dag veitt Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. Það var Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningamálaráðherra sem veitti Vigdísi verðlaunin.

Þetta er í fimmtánda sinn sem Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur. Hans var minnst í skólum landsins og á vegum margra annarra stofnana og samtaka verður dagsins minnst með ýmsu móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×