Körfubolti

Kjarnaleikmenn Keflavíkurliðsins framlengdu sína samninga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birna Valgarðsdóttir verður áfram með Keflavík.
Birna Valgarðsdóttir verður áfram með Keflavík. Mynd/Stefán
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur samdi í gær við sex leikmenn kvennaliðsins og þar eru á ferðinni kjarnaleikmenn liðsins undanfarin tímabil. Keflavíkurkonur verða því eins og áður sterkar í kvennakörfunni á komandi tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur.

Stelpurnar sem framlengdu samninga sína við liðið voru Rannveig Randversdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Marín Rós Karlsdóttir.

Keflavík hefur einnig fengið til liðs við sig miðherjann Hrund Jóhannsdóttur sem spilaði með Val í vetur og er henni ætlað að hjálpa liðinu í frákastabaráttunni.

Keflavík endaði í 2. sæti í bikarkeppninni síðasta vetur og tapaði í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppninnar fyrir Hamar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×