Innlent

Tekinn við bruggun, kannabisrækt og dópsölu

Karlmaður um fertugt var handtekinn í heimahúsi við Stórholt í Reykjavík í nótt, staðinn að bruggun áfengis, ræktkun kannabisplantna og grunaður um sölu á amfetamíni eða kókaíni.

Það var rétt fyrir klukkan tvö í nótt að íbúi í húsinu tilkynnti lögreglu um vatnsleka ofan af efri hæðinni. Þegar hún kom á vettvang blöstu við kannabisplöntur, bruggkútar og eimingartæki.

Við nánari athugun fundust líka margir tugir gramma af af amfetamíni, eða kókaíni. Vatnslekinn var stöðvaður, húsráðandi handtekinn og verða plönturnar og bruggtækin fjarlægð í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×