Íslenskur bakari gerir það gott í Gimli 27. desember 2010 10:13 Birgir Róbertsson með vínarterturnar sem seldust eins og heitar lummur fyrir jólin Mynd: Winnipeg Free Press
Kleinur, laufabrauð, kransakaka og rúgbrauð úr bakarínu Reykjavik Cafe hafa sannarlega slegið í gegn hjá íbúum Gimli í Manitobafylki í Kanada. Birgir Róbertsson bakari er einn af þeim sem ákvað að leita tækifæranna í nýju landi og flutti til Kanada í júní 2009. Bakaríið opnaði hann í apríl og hafa viðskiptin sannarlega blómstrað. Rætt er við Birgi í kanadíska vefritinu Winnipeg Free Press og þykir blaðamanni það afar merkilegt að Birgir á að baki fimm ára bakaranám. Stærsta bakaríið í Gimli lokaði fyrir um tveimur árum og segist Birgir þá hafa séð þarna viðskiptatækifæri. Þá er bakkelsi Birgis lýst fyrir Kanadabúum sem aldrei hafa bragðað kleinu. „Sumir kalla þær íslenska kleinuhringi," segir Birgir til að skýra málið. Laufabrauðið er afar framandi og er það sagt vera hringlaga, djúpsteikt og skreytt fuglasporum. Þá kemur fram að skreytingarnar séu gerðar með „laufabraud jarn." Kanadabúar eru einnig uppfræddir um að fyrir jólin skeri íslensk börn stundum út nöfnin sín og búa til eigin mynstur á laufabrauðin. Hægt er að skrifa athugasemdir við umfjöllunina og ber fólk þar mikið lof á bakaríið. „Kransakana er fáránlega góð. Þú verður að fara í þetta bakarí ef þú kemur til Gimli!“ segir í einni athugasemdinni. Umfjöllunina um Reykjavik Cafe í Gimli má finna hér.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Úrslitastund í troðfullri Valhöll Innlent Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Innlent Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Innlent Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Innlent Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Innlent Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Innlent Fleiri fréttir „Þetta er afgerandi niðurstaða fyrir mig“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Starfsmaðurinn ekki í lífshættu og barátta um annað sætið í Kraganum Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Stjórnmálin á Sprengisandi í dag Spurt um áhuga fólks á Degi í forystu í Reykjavík Þrír handteknir fyrir hótanir og brot á vopnalögum Sjá meira
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent