Ekki næg orka fyrir bæði álver og metanólverksmiðju Kristján Már Unnarsson skrifar 27. desember 2010 18:30
Metanólverksmiðja, sem Carbon Recycling undirbýr nú í Kröflu í samvinnu við Landsvirkjun, útilokar álver á Húsavík en gæti skapað allt að 25 ný störf í Mývatnssveit. Í febrúar skýrist hvort áformin verða að veruleika en þangað til býður Landsvirkjun nokkrum aðilum að bítast um orku Þingeyinga. Carbon Recycling er að meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta og er þegar byrjað að reisa í Svartsengi fyrstu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum, sem mun nota koltvísýring úr borholum HS Orku og raforku til þess að framleiða metanól, öðru nafni tréspíritus. Aðferðin nýtur einkaleyfis og hefur verið þróuð í tilraunaverksmiðju á Höfðabakka í Reykjavík á undanförnum árum en metanól er einkum notað til blöndunar í bílabensín og má nota alfarið í sumum bíltegundum. Carbon Recycling hefur uppi stór áform og hefur nú undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um undirbúning eldsneytisverksmiðju við hlið Kröfluvirkjunar. Verksmiðjan þar yrði 20 sinnum stærri en sú sem rís í Svartsengi og öll framleiðslan seld úr landi. Að sögn Benedikts Stefánssonar hjá Carbon gæti fyrri áfangi verksmiðjunnar verið tilbúinn árið 2013, og þar myndu starfa 10 til 15 manns. Þegar síðari áfanginn yrði tilbúinn, hugsanlega árið 2014, gætu bæst við tíu störf. En það er önnur hlið á þessu máli því að á meðan Mývetningar sæju fram á ný störf sætu áhugamenn um álver við Húsavík eftir með sárt ennið því það yrði um leið nánast slegið út af borðinu. Metanólverksmiðjan þarf mikla orku, 50 megavött, álíka og Kröfluvirkjun framleiðir nú, en við undirbúning álvers á Bakka hefur verið gengið út frá því að það þyrfti alla tiltæka orku á svæðinu, og jafnvel meira til. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tekur þó fram að viljayfirlýsing við Carbon Recycling sé ekki skuldbindandi. Viðræðum verði haldið áfram við þá 4-5 aðila, sem sækjast eftir orkunni, þar á meðal við bæði Alcoa og Bosai, sem sýnt hafa áhuga á álveri. Það er hins vegar í febrúar sem stefnt er að því að það skýrist hvort metanólverksmiðja rísi við Kröflu. Aðrir áhugasamir kaupendur að orkunni í Þingeyjarsýslum hafa því ekki langan tíma til að bjóða betur.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Úrslitastund í troðfullri Valhöll Innlent Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Innlent Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Innlent Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Innlent Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Innlent Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Innlent Fleiri fréttir „Þetta er afgerandi niðurstaða fyrir mig“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Starfsmaðurinn ekki í lífshættu og barátta um annað sætið í Kraganum Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Stjórnmálin á Sprengisandi í dag Spurt um áhuga fólks á Degi í forystu í Reykjavík Þrír handteknir fyrir hótanir og brot á vopnalögum Sjá meira
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent